Fréttir & tilkynningar

13. ágúst 2026

Viðburðir og endurmenntun - Ný síða

Við höfum sett upplýsingar um viðburði og endurmenntun á vegum ÖÍ hér á síðuna okkar undir Ökukennarafélag Íslands - Viðburðir og endurmenntun

https://www.aka.is/okukennarafelag/vi%C3%B0bur%C3%B0ir/

14. júlí 2026

Sumarfrí skrifstofu ÖÍ

Lokað verður á skrifstofu ÖÍ frá 28. júlí til 11. ágúst vegna sumarleyfa.

9. júlí 2026

Ný bók til sölu - Undir stýri

Bókin Undir Stýri eftir Jónas Helgason er nú er komin í sölu.

Bókin er til undirbúnings prófs fyrir A- og B réttindi og setur námsefnið fram á skýran, einfaldan og aðgengilegan hátt.

Hægt er að nálgast bókina undir flokkinum "Námsefni á vefnum".
Athugið að bókin er eingöngu fáanleg á rafrænu formi.

21. apríl 2026

Ársþing ÖÍ 2026

Ársþing ÖÍ verður haldið laugardaginn 25. apríl nk. kl. 13:15 á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík.

Í tengslum við þingið mun Ökukennarafélagið fara í heimsókn í bílaumboðið Öskju. Einnig verða haldin endurmenntunarnámskeið í skyndihjálp og í streitu-, tíma- og orkustjórnun, upplýsingar um viðburði og skráningarhnappar hafa verið sendir í tölvupósti á félagsmenn.

12. desember 2024

Skrifstofa félagsins verður lokuð vegna jólafría milli 20. desember og 6. janúar

Skrifstofa félagsins verður lokuð vegna jólafría milli 20. desember og 6. janúar.

24. október 2024

Endurmenntunarnámskeið í skyndihjálp fyrir ökukennara

Endurmenntunarnámskeið í skyndihjálp fyrir ökukennara 7. nóvember n.k.

Þann 7. Nóvember n.k. mun Ökukennarafélag Íslands halda endurmenntunarnámskeið í skyndihjálp fyrir ökukennara. Námskeiðið er frá klukkan 17:30 til 21:30 í húsnæði félagsins að Þarabakka 3, 3. hæð.
Kennari á námskeiðinu er Guðjón S. Magnússon ökukennari og leiðbeinandi í skyndihjálp.

Námskeiðsgjald: 6.000 krónur fyrir félagsmenn og 20.000 fyrir utanfélagsmenn.

Skráning fer fram hér

(ath, smella þarf á fyrirsögninga til að opna greinina og smella á hlekkinn)

Námskeiðslýsing:

  • Farið er yfir undirstöðuatriði skyndihjálpar, hin fjögur skref; tryggja öryggi, athuga viðbrögð, meta ástand slasaðra eða sjúkra, sækja hjálp og veita skyndihjálp.
  • Farið er yfir þá samfélagslegu og lagalegu skyldu að einstaklingurinn þurfi að bregðast við í neyðartilfellum, hvernig sé unnið úr streitu í neyðartilfellum ofl.
  • Farið er yfir og gerð grein fyrir mikilvægi þess að tryggja öryggi á vettvangi, björgun og flutningi slasaðra af slysstað og í hvaða tilfellum þurfi að færa slasaða einstaklinga.
  • Farið er yfir grunnendurlífgun og sjálfvirkt hjartastuðtæki og verkleg endurlífgun kennd. Einnig verður hliðarlega sýnd og æft verður losun aðskotahlutar úr öndunarvegi.
  • Farið verður yfir helstu bráða sjúkdóma og farið yfir einkenni og rétt viðbrögð til að bregðast við þeim. Einnig verður yfirferð yfir höfuð-, háls og hryggáverka og rétta meðferð við beina-, liðamóta og vöðvaáverkum.
  • Farið verður yfir hvernig stöðva skuli blæðingu og bruna og rétt meðferð kennd, sagt frá ofkælingu, hitaslagi og drukknun.

Þekkingarviðmið
Nemandinn skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Fjórum skrefum skyndihjálparkeðjunnar sem eru að; tryggja öryggi á vettvangi, meta ástand slasaðra eða sjúkra, sækja hjálp og veita skyndihjálp
  • Endurlifgun og notkun á sjálfvirku hjartastuðtæki
  • Helstu einkennum bráðra veikinda og réttum viðbrögðum við þeim
  • Réttum viðbrögðum í slysum og áverkum

Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
• Meta ástand sjúkra og slasaðra
• Veita skyndihjálp við slys og bráð veikindi
• Að nemandinn viti og skilji hvaða viðbrögðum á að beita hverju sinni

Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
• geta veitt endurlífgun og kunna á sjálfvirk stuðtæki í neyðartilfellum
• geta brugðist rétt við ef um veikindi er að ræða
• geta bundið um sár og flutt sjúkling til við yfirvofandi hættu
• geta veitt sálræna skyndihjálp
• að nemandinn geti veitt viðeigandi skyndihjálp af öryggi í þeim aðstæðum sem upp kunna að koma

Námsmat
Námskeiðið er 4 klst. og byggir á fyrirlestrum, myndböndum, verklegum æfingum og virkni nemenda í tíma


Skráning hér

24. september 2024

Breyting á opnunartíma skrifstofu

Tilkynning frá skrifstofu.

Frá og með 1. október mun opnunartími skrifstofu ÖÍ, Þarabakka 3 breytast.

Opið verður þriðjudaga og fimmtudaga á milli 12:00-16:00

23. september 2024

Varðandi styrki frá stéttafélögum

Haft var samband við okkur varðandi endurgreiðslu og styrki frá stéttafélögum fyrir ökunám.

„Eingöngu er tekið við greiðslukvittunum þar sem sjá má staðfestar færslur/greiðslur frá íslenskum bankareikningi/greiðslukorti til viðkomandi fræðsluaðila. Sjóðurinn tekur ekki gildar greiðslukvittanir fyrir námi/námskeiðum sem greidd eru með peningum. „

Kv. Skrifstofa

20. september 2024

Félagsfundur ÖÍ

Félagsfundur ÖÍ verður haldinn þann 23. september n.k. kl 19:30 að Þarabakka 3. 3 hæð.

Dagskrá

Framtíð húsnæðismála félagsins á þriðju hæð að Þarabakka 3 með möguleika á sölu og/ eða leigu á húsnæðinu.

Fundinum verður steymt í fjarfundi á Zoom og linkur sendur út á mánudaginn. 

Stjórnin

19. september 2024

Dagskrá umferðarþings

Umferðarþing Samgöngustofu verður haldið föstudaginn 20. september kl. 9:00-15:30 í Gamla Bíói, Ingólfsstræti 2a í Reykjavík.

Hér má sjá dagskrá þingsins en þemað í ár er samspil ólíkra vegfarendahópa. Munu fulltrúar vegfarendahópa greina frá sínum fararmáta, hvað er gott við hann og hvaða áskorunum þau mæta.

Ríkissáttasemjari mun taka þátt í deginum með okkur. Mun hann leggja línurnar fyrir daginn og er ætlunin að nýta hans aðferðarfræði við að ná árangri. Einnig mun hann stýra pallborði í lok þingsins.