Fréttir

til félagsmanna

Frá Samgöngustofu 22. apríl 2024

Það eru nokkur atriði sem við viljum upplýsa ökukennara um:

  • Rafræn próftaka hefst um allt land 16. maí 2024
  • Nýjar reglur um túlka í ökuprófum
  • Stilling ljósarofa í verklegu prófi
  • Ökukennaranám fyrir starfsflokk 2, kennslu á bifhjól.

Rafræn próftaka hefst um allt land fimmtudaginn 16.maí 2024. Við byrjum á prófum fyrir B - flokk en í aðrir flokkar fylgja svo í kjölfarið.

Eftir að hafa farið yfir túlkun ökuprófa og kröfur til túlka hefur Samgöngustofa ákveðið að setja eftirfarandi skilyrði við viðurkenningu túlka:

Túlkur skal hafa löggildingu sem túlkur eða hafa lokið námi í samfélagstúlkun við Háskóla Íslands.

Ósk um samþykki Samgöngustofu sem túlkur í ökuprófi skal senda á netfangið okurettindi@samgongustofa.is ásamt ferilskrá og afriti af prófskírteinum.

Samgöngustofa áskilur sér rétt til að meta námsferil einstakra umsækjenda með tilliti til ofangreindra krafna.

Að gefnu tilefni vill SGS árétta að stilling ljósarofa á auto er ekki fullnægjandi í ökuprófi. SGS styður túlkun Frumherja á því atriði.

Að lokum er gaman að segja frá því að samþykkt námskrá fyrir starfsflokk 2, kennsluréttindi á bifhjól, var birt í stjórnartíðindum 17. apríl síðastliðinn og EHÍ hefur nú þegar hafið vinnu við skipulagningu náms fyrir starfsleyfisflokk 2.

Bókhald og rekstur - fjarnámskeið

Bókhald og rekstur, endurmenntunarnámskeið fyrir ökukennara, verður haldið í fjarnámi þann 8. maí n.k. kl. 18:00 til 21:00. ATH takmarkaður fjöldi þátttakenda er á námskeiðið.

Kennari: Þorsteinn S. Karlsson viðskiptafræðingur og ökukennari.
Námskeiðið er gjaldfrjálst fyrir félagsmenn.
Lengd námskeiðs: 3 kennslustundir.
Skráning á aka@aka.is

Markmið námskeiðsins er samkvæmt námskrá fyrir endurmenntun ökukennara:

Að ökukennarinn þekki:

  • hvað þarf til að fara út í sjálfstæðan rekstur og hvað kröfur RSK gerir til þeirra sem hefja rekstur,
  • Að hann þekki einnig kröfur og reglur sem snúa að greiðslu launa og launatengdra gjalda.
  • Að hann þekki mun á mismunandi rekstarformi sem hægt er að nota til að stofna og hefja rekstur.
  • Að ökukennari geti skilað inn skattaskýrslum miðað við einfaldan rekstur.
  • Að ökukennari þekki hvaða kostnaður felur til við að hefja rekstur og greiða laun.
  • Að ökukennari þekki helstu reglur sem snúa að bókhaldi og hvernig á að færa einfalt bókhald.
  • Að ökukennari þekki reglur sem snúa að niðurfelllingu vörugjalda á bifreiðum notuðum í ökukennslu.


Ársþing Ökukennarafélags Íslands, Þuríður B. Ægisdóttir áfram formaður félagsins.

Ársþing Ökukennarafélags Íslands var haldið nú um nýliðna helgi og var vel sótt af félagsmönnum. Tveir voru í framboði til formanns þ.e. Þuríður B. Ægisdóttir sitjandi formaður og Þórður Bogason en Reginn Þórarinsson dró framboð sitt til baka. Þuríður B. Ægisdóttir var endurkjörin formaður félagsins með afgerandi kosningu en hún var fyrsta konan til að hljóta kosningu sem formaður í félaginu fyrir tveimur árum síðan. Félagið var stofnað 22. nóvember 1946 og er fagfélag ökukennara og er markmið félagsins að vinna að auknu umferðaröryggi með betra ökunámi og er í samstarfi við systurfélög á Norðurlöndunum og víðar í Evrópu.

Stjórn félagsins er nú skipuð að þingi loknu, Þuríður B. Ægisdóttir formaður og í aðalstjórn eru; Gunnsteinn Sigfússon Jóhannes Högnason, Kristinn Bárðason, Stefanía Guðjónsdóttir, Valur Örn Arnarson og Þorsteinn S. Karlsson. Í varastjórn félagsins eru; Frímann Ólafsson, Guðbrandur Bogason og Steindór Tryggvason.

Vorfagnaður bifhjólafólks

Ökukennarafélag Íslands, Bifhjólasamtök lýðveldisins Sniglar og Samgöngustofa bjóða til árlegs Vorfagnaðar bifhjólafólks fimmtudaginn 25. apríl - sumardaginn fyrsta!

Vorfagnaðurinn verður haldinn á svæði Ökuskóla 3 að Álfhellu í Hafnarfirði og hefst klukkan 13:00. Boðið verður upp á upprifjun fyrir sumarið, glæsilegar veitingar og spennandi brautarakstur sem allir geta tekið þátt í.

Þarna ægir saman öllum stærðum og gerðum hjóla, svo ekki sé talað um fólk og öll eru velkomin.

Hittumst, hjólum, njótum og förum örugg inn í sumarið ☀️

Sjá nánar á Facebook-viðburði

Skráning á ársþing ÖÍ 2024


Nú er komið að skráningu á ársþing ÖÍ fyrir árið 2024.

Ársþingið verður haldið 20. apríl n.k. kl. 13:15 á Hilton Reykjavík Nordica í sal HI að Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík. Skráningarfrestur er til og með 18. apríl.

Smelltu hér til að skrá þig á þingið

Ef það eru einhverjar spurningar þá endilega hafðu samband við skrifstofu ÖÍ í síma 898-0360 eða á netfangið aka@aka.is

Ársþing ÖÍ 20. apríl á Hilton Reykjavík Nordica

Ársþing Ökukennarafélags Íslands árið 2024 verður haldið 20. apríl n.k. kl. 13:15 á Hilton Reykjavík Nordica að Suðurlandsbraut 2 108 Reykjavík.

Dagskrá ársþings:

  1. Kosning þingforseta, þingritara og varamanna þeirra.
  2. Þingforseti kannar lögmæti þingsins og boðunar.
  3. Skýrsla stjórnar.
  4. Reikningar félagsins bornir upp til samþykktar.
  5. Rekstraráætlun næsta árs kynnt.
  6. Þá skal einnig kynnt eftir því sem við á rekstrarafkoma þeirra félaga sem Ö.Í. á aðild að.
  7. Kosning formanns, 3ja stjórnarmanna, varastjórnar, 2ja skoðunarmanna reikninga og 1 til vara í samræmi við 8. grein. Lesin er upp tillaga kjörnefndar. Þetta gildir einnig fyrir liði 8 og 9.
  8. Kosning fulltrúa í kjörnefnd í samræmi við 28. grein.
  9. Kosning fulltrúa í siðanefnd í samræmi við 30. grein.
  10. Lagabreytingar.
  11. Ákvörðun félagsgjalda.
  12. Önnur mál.

Stjórn ÖÍ

Samkvæmt 16. gr. laga Ökukennarafélagsins þá skal halda Ársþing fyrir 1. maí ár hvert.

Kosning mun fara fram um þrjá stjórnarmenn í aðalstjórn ÖÍ til tveggja ára. Í framboði eru:
Gunnsteinn R. Sigfússon
Jóhannes Högnason
Þorsteinn S. Karlsson

Kosning mun fara fram um þrjá stjórnarmenn í varastjórn ÖÍ til eins árs. Í framboði eru:
Frímann Ólafsson
Guðbrandur Bogason
Steindór Tryggvason

Kosning til formanns, í framboði eru:
Reginn Þórarinsson
Þórður Bogason
Þuríður B. Ægisdóttir, sitjandi formaður

Endurmenntunarnámskeiðið Fagmennska og þjónusta
20. apríl nk.

Endurmenntunarnámskeiðið Fagmennska og þjónsta ökukennara verður haldið á vegum félagsins þann 20. apríl n.k. kl. 10:00 til 12:00. Námskeiðið er samhliða ársþingi, á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík og einnig í fjarfundi.

Kennari: Eyþór Eðvarsson MA vinnusálfræði.

Lengd námskeiðs: 2 kennslustundir.

Námskeiðið er gjaldfrjálst fyrir félagsmenn.

Skráning fer fram á skrifstofu Ökukennarafélags Íslands í s. 898 0360 eða á aka@aka.is

Markmið námskeiðsins er að ökukennarar:

  • Auki færni sína til að skapa jákvætt umhverfi
  • Þekki mikilvægi þess að vera með gott skipulag, viðmót og þekkingu í kennslu sinni
  • Taki tillit til fjölbreytileika nemenda eða þeirra sem leita til þeirra varðandi ökukennslu
  • Þekki væntingar nemenda og forsjáraðila þeirra
  • Þekki lykilatriði í því að veita góða þjónustu

Félagsfundur 13. apríl kl. 11

Nú ætlum við að hita upp fyrir ársþingið okkar og halda félagsfund. Félagsfundurinn verður haldinn þann 13. apríl n.k. klukkan 11:00 í húsnæði félagsins að Þarabakka 3, 3. hæð 109 Reykjavík.

Efni fundarins er verkleg ökupróf (samtal). Við viljum skapa vettvang fyrir ökukennara til að ræða verkleg ökupróf.

Viðmiðunarkvarðann má finna á innri vef félagsins okkar.

https://www.aka.is/fundarger%C3%B0ir/vidmidunarkvardar/ Handbók ökuprófa | Ísland.is (island.is)

Heitt á könnunni og kleinur.
Stjórnin

Heimsókn til BL 19. apríl

BL Sævarhöfða býður félagsmönnum ÖÍ í heimsókn föstudaginn 19. apríl kl.17:30-19:00. Úrval bifreiða verða kynntar ásamt tilboði til ökukennara á ákveðnum tegundum bifreiða. Veitingar verða í boði.

Svo mögulegt sé að áætla fjölda þátttakenda vegna veitinga er gott að þið tilkynnið þátttöku í s. 898 0360 eða á aka@aka.is

Vistakstursnámskeið haldið aftur 4. apríl

Vegna mikillar aðsóknar hefur verið ákveðið að halda annað Vistakstursnámskeið fyrir ökukennara fimmtudaginn 4. apríl kl. 17:00 til 22:00. Námskeiðið verður haldið að Þarabakka 3, 3. hæð 109 Reykjavík.

Vinsamlega staðfestið þátttöku hér á aka@aka.is eða í s. 8980360.

  • Kennari: Ásgeir Gunnarsson bifvélavirkjameistari og ökukennari.
  • Námskeiðið er gjaldfrjálst fyrir félagsmenn.
  • Lengd námskeiðs: 5 kennslustundir.
  • Skráning á aka@aka.is

Markmið námskeiðsins er samkvæmt námskrá fyrir endurmenntun ökukennara:

Að auka skilning á:

  • Mengun frá ökutækjum, hvað mengar, hvernig minkum við mengun frá ökutæki, hver er mengun frá blendingsbílum og rafmagnsbílum.
  • Þekkja virkni blendings rafbíla og hreinna raforkubíla og helstu öryggisþætti sem snúa að rafbílum.
  • Hverjir eru valkostir við blendingsbíl, hvernig er að nálgast eldsneyti og hvaða orkugjafi hefur komið best út.
  • Hvaða hættur fylgja mismunandi eldsneyti.
  • Hvaða áhrif ástand ökutækis hefur á eldsneytisnotkun, blendingsbíla, rafbíla og bensín- og díselbíla.
  • Helstu nýjungar frá bílaframleiðendum, bæði í öryggismálum og í mengunarmálum.

Nám í ökugerði - breytingar í námskrá

Uppfærð námskrá fyrir almenn ökuréttindi birtist í stjórnartíðindum í gær, 21. mars 2024. Ekki var um verulegar efnislegar breytingar að ræða en þær breytingar sem nú þegar taka gildi við birtingu eru að ökunemi þarf að hafa lokið ökuskóla 1 og 10 verklegum kennslustundum til að geta stundað nám í ökugerði/ökuskóla 3 í stað skilyrða um ökuskóla 1 og 2 áður ásamt 12 verklegum kennslustundum. Með þessu móti hefur ökunemi rýmri tíma til að klára nám í ökugerði/ökuskóla 3 og stefnt er að því að fella alfarið niður undanþágur frá námi í ökugerði þegar fram líða stundir.


Undanþágan gildir til og með 22. apríl 2024.

Athugið að í ljósi aðstæðna verður tímabundin almenn undanþága fyrir Norðurland, sem falla átti úr gildi 24. mars, framlengd.

stjornartidindi.is/Advert.aspx?RecordID=6fae0d46-6f26-47d8-a313-cb7150aaf936

Jón Jónsson ökukennari 100 ára

Þann 8. mars sl. varð Jón Jónsson ökukennari 100 ára. Hann dvelur nú á Skjóli en þeir Guðbrandur Bogason og Snorri Bjarnason heimsóttu hann í tilefni aldarafmælisins og færðu honum blómvönd og kveðju frá Ökukennarafélaginu.

Jón starfaði sem bílstjóri uppi á velli eins og það var gjarnan kallað, þangað til hann lauk þar störfum 1953 eða 1954 og byrjaði sem bílstjóri hjá Strætisvögnum Reykjavíkur. Þar keyrði hann leiðir 6, 8 og 9. Einnig vann hann við ökukennslu.

Ökukennarafélag Íslands óskar Jóni hjartanlega til hamingju með 100 ára afmælið!

jon100

Grein á Vísi.is - Leiðin að bíl­prófinu

Að undangengnu ökunámi og að loknu ökuprófi bæði skriflegu og verklegu þá hefur ökunemi öðlast ökuréttindi á fólksbíl þ.e. ef viðkomandi hefur náð 17 ára aldri.

En hvað felst í ökunámi? Eins og segir í námskrá um B réttindi þá skal ökukennsla hafa það að meginmarkmiði að neminn tileinki sér það viðhorf og þá þekkingu og færni sem nauðsynleg er til að hann geti ekið með sem mestu öryggi, með fullri fyrirhyggju og framsýni, fullu tilliti til öryggis og heilsu annarra og umhverfisins. Ásamt því að hann aki í samræmi við fyrirmæli umferðarlaga, reglugerða og annarra fyrirmæla sem sett eru um akstur og umferð. Í námskránni er einnig nánar tiltetkið það sem ökukennari skal kenna ökunemanum og sjá til þess að hann nái að tileinka sér efnið, bæði bóklegt og verklegt sem er svo mikilvægt til að nýjir ökumenn séu sem best undir það búnir að takast á við þær fjölbreytilegu aðstæður sem upp geta komið í umferðinni. Að öryggi okkar allra sé sem mest.

En hvað þarf að uppfylla til að fá heimild til að þreyta ökuprófið? Við þurfum að hafa náð tilteknum aldri til að fá að byrja að læra að aka bifreið, við þurfum að ljúka við bóklegt nám sem tekið er í tveimur hlutum þ.e. ökuskóli 1 og ökuskóli 2. Við þurfum að hafa lokið við nám í ökugerði og við verðum að hafa lokið við ákveðinn fjölda verklegra kennslustunda sem er skv. námskránni 17 til 25 að jafnaði.

Mikilvægt er að hafa í huga að ökunám er ferli sem ökuneminn fer í gegnum með ökukennaranum og fjöldi atriða eru tekin fyrir á námstímanum sem við erum mis lengi að ná að tileinka okkur. Hvert er þá ferlið í ökunáminu og oft er spurningin hjá foreldrum og þeim sem hefja vilja ökunám, hvað á ég að gera? Hvar á ég að byrja?

Við byrjum á að finna ökukennara, t.d. á aka.is en það er heimasíða Ökukennarafélags Íslands (ÖÍ) og þar er listi yfir þá ökukennara sem eru starfandi og eru félagsmenn í ÖÍ. Einnig eru þar upplýsingar hvort ökukennarinn kenni á beinskipta- og/eða sjálfskipta bifreið og fleiri upplýsingar. Að því loknu þarf að sækja um ökunámsheimild og það er gert rafrænt á slóðinni https://island.is/fyrsta-okuskirteini-namsheimild, en mikilvægt er að hafa í huga að skila þarf inn læknisvottorði í sumum tilvikum og alltaf þarf að skila inn passamynd til sýslumanns. Eftir að einum ökutíma er lokið þá er heimilt að skrá sig í ökuskóla 1 (Ö1) en mikilvægt er að vera í góðu sambandi við ökukennarann um það hvernig best er að haga náminu. Ökuneminn þarf á námstímanum einnig að ljúka ökuskóla 2 (Ö2) og námi í ökugerði eða Ökuskóla 3. Að loknum ákveðnum tímafjölda í verklegu námi og að loknum Ö1 og Ö2 getur ökuneminn skráð sig í skriflegt ökupróf og mikilvægt er að skoða þau úrræði sem til eru varðandi það að taka skriflega ökuprófið. Að því loknu og þegar Ökuskóla 3 er lokið þá má þreyta verklegt ökupróf. Þegar skriflegu og verklegu ökuprófi er lokið með fullnægjandi hætti þá fær viðkomandi ökuskírteini sem gildir í þrjú ár, þ.e. bráðabirgða ökuskírteini. Fullnaðarskírteini sem gildir í fimmtán ár fær viðkomandi eftir að hafa farið í aksturmat með ökukennara, því má segja að þá lýkur ökunámi með ökukennara. En munum að stærsta prófið er að takast á við allar þær fjölbreyttu og óvæntu aðstæður sem taka á móti okkur úti í umferðinni og því prófi lýkur aldrei. Þess vegna er svo mikilvægt að ökunám sé gott, markvisst og að ökukennarar hafi möguleika á að þróast í starfi ásamt því að fá tækifæri til að undirbúa nýja ökumenn sem best fyrir þær áskoranir sem bíða þeirra í umferðinni.


Þuríður B. Ægisdóttir, formaður Ökukennarafélags Íslands.
Grein á Vísi þann 18. mars 2024.

Félagsfundur - erindi frá Vegagerðinni

Minnum á félagsfundinn sem verður haldinn miðvikudaginn 20. mars n.k. klukkan 20:00 í húsnæði félagsins að Þarabakka 3. Sævar Helgi Lárusson öryggisstjóri Vegagerðarinnar kemur og ræðir um vinnusvæðamerkingar og aðrar öryggisráðstafanir vegna framkvæmda á og við veg.

Fundurinn verður einnig sendur út í gegnum fjarfundabúnað. Hlekkur kemur í tölvupósti til félagsmanna.

Endurmenntun - skyndihjálp - Akureyri

Þann 26. mars n.k. mun Ökukennarafélag Íslands halda endurmenntunarnámskeið í skyndihjálp fyrir ökukennara í Ökukennarafélagi Íslands. Námskeiðið er frá klukkan 17:00 til 21:00 í húsnæði Rauða krossins að Viðjulundi 1, 600 Akureyri.

Kennari á námskeiðinu er Þórarinn Steingrímsson leiðbeinandi í skyndihjálp.

Takmarkaður fjöldi er á námskeiðið. Námskeiðið er gjaldfrjálst.

Skráning á aka@aka.is

Heimsókn til BL - FRESTAÐ

BL Sævarhöfða ehf býður félagsmönnum ÖÍ í heimsókn að Sævarhöfða 2 næstkomandi fimmtudag þ.e. 14. mars frá klukkan 17:00 til 19:00.

Úrval bifreiða verða kynntar ásamt tilboði til ökukennara á ákveðnum tegundum bifreiða.

Veitingar verða í boði.

Svo mögulegt sé að áætla fjölda þátttakenda vegna veitinga er gott að þið tilkynnið þátttöku á aka@aka.is

VAR FRESTAÐ

Fatnaður frá 66°Norður

Ökukennarafélag Ísland hefur fengið tilboð í MERKTAN fatnað fyrir ökukennara frá 66°Norður.

Í þessum bæklingi má finna allar upplýsingar um flíkurnar sem eru í boði.

BÆKLINGUR

SMELLTU HÉR TIL AÐ LEGGJA INN PÖNTUN

Undir hverri mynd á pöntunarsíðunni er hægt er að velja stærð. Ef þið óskið eftir fleiri eintökum í sömu stærð tilgreinið þið það neðst við hverja flík með því að haka við "Other eða Annað” og tilgreinið magn í hverri stærð eða leggið inn aðra pöntun.

Hægt er að koma við í verslunum 66°Norður Miðhrauni 11 eða Faxafeni 12 og skoða vörurnar og máta.

Frestur til að panta er til 1. apríl 2024

Reykjavík síðdegis á Bylgjunni 28. febrúar

Þuríður Berglind Ægisdóttir formaður ræðir við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni um almenn leikreglur í umferðinni.

Hægt er að hlusta á þáttinn hér.


Ökunám í Ísland í dag 27. febrúar

Í Íslandi í dag var fjallað um ökunám. Þar fer Kristín Ólafsdóttir yfir kostnað, nýjungar og almennt vesen sem fylgir því að taka bílpróf, þar koma fram einhverjar staðreyndarvillur en þess má geta að þann hluta viðtalsins vann hún sjálf án þess að bera undir okkur. Síðar er rætt við Þuríði Berglindi Ægisdóttur, formann Ökukennarafélagsins, um kennsluna, nemendurna og umferðina almennt.

Þáttinn má sjá hér.

Ný reglugerð (nr. 250/2024) um umferðarmerki


Ný reglugerð (nr. 250/2024) um umferðarmerki og notkun þeirra tekur gildi 1. mars 2024. Eldri umferðarmerki halda gildi sínu þar til þau verða fjarlægð eða þeim er skipt út. Gera má ráð fyrir að nemendur í skriflegu ökupróf verði spurðir út í nýju merkin frá 1. september en eftir 1. mars má gera ráð fyrir að nemendur verði ekki spurðir út í merki sem fallið hafa út úr reglugerðinni.

Á vef Samgöngustofu má finna ítarlegar upplýsingar um nýju reglugerðina, nýtt flokkunarkerfi og merki og þær breytingar sem hafa átt sér stað innan viðkomandi flokks

https://island.is/s/samgongustofa/umferdarmerki

Félagsfundur 22. febrúar 2024 - GLÆRUR

Hér má finna glærur frá starfsfólki Samgöngustofu en þær Sigurlína Freysteinsdóttir, Anney Þórunn Þorvaldsdóttir og Margrét Birna Björnsdóttir komu til okkar á fundinn til að ræða rafræna próftöku og stafrænt ökunám. ATH að breytingin mun taka gildi í apríl 2024 og mun Samgöngustofa senda frá sér tilkynningu áður.

GLÆRUR


Ný reglugerð um umferðarmerki

Ný reglugerð um umferðarmerki mun taka gildi þann 1. mars 2024. Hér neðar má sjá lokaútgáfu reglugerðarinnar með viðaukum, einnig hér á vef Samgöngustofu.

Ný merki munu ekki koma inn í ökuprófin fyrr en að sex mánuðum liðnum, þ.e. 1. september. Samkvæmt upplýsingum frá Samgöngustofu má gera ráð fyrir að nemendur verði ekki spurðir út í merki sem fallið hafa út úr reglugerðinni frá og með 1. mars og verði fyrst spurðir út í nýju merkin frá 1. september.

Reglugerð_-_Lýsingarhluti.pdf
Viðauki_I_-_Notkun_umferðarmerkja.pdf
Viðauki_II_-_Breytileg_umferðarmerki.pdf
Viðauki_III_-_Notkun_hljóðmerkja.pdf
Viðauki_IV_-_Yfirborðsmerkingar.pdf