Könnun

Ætti að hækka hámarkshraðann á þjóðvegum?
 

Nýskráning ökukennara

Þessi innskráning er einungis fyrir ökukennara. Sláðu inn staðfestingarorðið sem þú hefur fengið frá stjórn Ökukennarafélagsins.
Um félagið
Skrifað af: Þorvaldur Finnbogason
fimmtudagur, 19. febrúar 2009 15:33
Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Ökukennarafélag Íslands
Þarabakka 3
109 Reykjavík
Tölvupóstur Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Sími 567 0360

Kt 620395-2429
VSK nr 10769

 

Stutt ágrip af sögu félagsins.

Ökukennarafélag Íslands var formlega stofnað 22. nóvember 1946. Upphaflega hét félagið Bifreiðakennarafélag Reykjavíkur síðar Ökukennarafélag Reykjavíkur og Ökukennarafélag Íslands frá 1968.
Fyrsti formaður félagsins var Daníel Sumarliðason.

Í fyrstu lögum félagsins var tilgangur skilgreindur;

  1. Að vinna að aukinni umferðarmenningu allra þeirra er ökutækjum stjórna.
  2. Að koma á fót bifreiðakennsluskóla á svo víðtækum grundvelli sem frekast er kostur.
  3. Að tryggja það að nemendur fái sem besta og fullkomnasta kennslu í bifreiðaakstri og aukna þekkingu á umferðareglum.
  4. Að koma á föstu formi um kennsluaðferðir.
  5. Að vinna að hagsmunamálum félagsmanna, eftir því sem við verður komið.

1961 kom út fyrsta kennslubókin á vegum félagsins, Akstur og umferð.
1968 gengur félagið í norrænu samtökin NBU, Nordisk Bilskole Union sem síðar breyttust í NTU, Nordisk Trafikskole Union.
1968 var stofnaður ökuskóli og leigt fyrir hann húsnæði að Stigahlíð 45 í Reykjavík.
1970 var ökuskólinn gerður að sjálfstæðri stofnun með eigin stjórn og sérstöku bókhaldi og hlaut hann nafnið Fræðslumiðstöð Ökukennarafélags Íslands, FÖÍ. Fyrsti formaður fræðslumiðstöðvarinnar var Kjartan Jónsson.

Síðast uppfært ( fimmtudagur, 10. desember 2009 17:33 )