Nýskráning ökukennara

Þessi innskráning er einungis fyrir ökukennara. Sláðu inn staðfestingarorðið sem þú hefur fengið frá stjórn Ökukennarafélagsins.
Tilkynning til ökukennara varðandi nýtt kerfi ökunáms sem nú hefur tekið gildi.
Skrifað af: Ritari
sunnudagur, 17. janúar 2010 20:22
Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Málin standa þannig að Samgönguráðuneytið hefur ekki ennþá samþykkt námsskrá fyrir Ö3. Þess vegna er ekki hægt að kynna verðlagningu námskeiðanna strax.

Þeir nemendur sem hefja ökunám 01.01.2010 eða síðar sem eru skyldugir til að sækja nám í ökugerði (Ö3). Ökukennarafélagið hefur ákveðið að strax og námskrá hefur verið samþykkt af ráðuneytinu verði þeim ökunemum sem hafa byrjað ökunám eftir 01.01.2010 og ætla að ljúka því í janúar eða febrúar boðið upp á nám í Ö3. Félagið óskar eftir því að félagsmenn sem eru með slíka nemendur að hafa samband við skrifstofuna og skrá viðkomandi einstaklinga á lista. Unnið verður að lausn þeirra mála.

Verðlagningu fyrir námskeiðið verður stillt í hóf þannig að þeir bíði ekki fjárhagslegt tjón af. Ljóst er að nokkuð vantar upp á kynningu á þessu málefni félagsmönnum hefur verið boðið upp á sérstakar kynningar á Kirkjusandi.

Eins og fram hefur komið eru það einungis nemendur sem eru fæddir 1994, eða þeir sem hefja ökunám eftir 01.01.2010 sem eru skyldugir til að koma í Ö3 (Ökugerði) og því er ekki gert ráð fyrir neinni sprengju í aðsókn svona fyrst um sinn.

Nokkrir þættir varðandi þetta mál eru enn ófrágengnir en strax og námsskráin verður staðfest verður sett af stað kynningarherferð. Ökuskóli Ö1 verður 12 tímar, Ö2 verður 10 tímar og Ö3 verður 5 tímar sem skiptast í 2 verklega tíma og 2 tímar sem verða blanda af sýni- og fræðilegri kennslu og svo einn tími í fræðilegu námi.
Félagsmenn eru beðnir að vera vakandi og fylgjast vel með þegar þessi starfsemi verður auglýst.

Bestu kveðjur,
Guðbrandur Bogason, framkvæmdastjóri