|
Kynningarfundir fyrir ökukennara vegna nýrrar námskrár til B-réttinda
Skrifað af: Ritari
mánudagur, 15. febrúar 2010 22:22
|
|
|
|
Ökukennarafélag Íslands og Umferðarstofa standa saman að kynningarfundum. Kynntar verða breytingar á námskrá til almennra ökuréttinda, námsmarkmið og skipulag, markmið kennslu í ökugerði, notkun skrikvagna, staða fjarnáms, kennsla í öryggisrými o.fl. Fundarstaðir og tími: Reykjavík; mánudagur 22. febr. kl. 16-18 og mánudagur 1. mars kl. 16-18 að Borgartúni 30. Egilsstaðir; þriðjudagur 23. febr. kl. 9-11 í Ökuskóla Austurlands að Lagarfelli 11 Akureyri; þriðjudagur 23. febr. kl. 15-17 í Ökuskólanum á Akureyri að Sunnuhlíð Borgarnes; miðvikudagur 24. febr. kl. 16-18 í Hyrnunni Selfoss; fimmtudagur 25. febr. kl. 16-18 í Ökuskóla Suðurlands að Eyrarvegi 55 Keflavík; föstudagur 26. febr. kl. 16-18 í HeiðarskólaSjá nánar fundarboð Sjá yfirlit breytinga Sjá nánar á heimasíðu Umferðarstofu
Síðast uppfært ( mánudagur, 15. febrúar 2010 22:32 )
|
|
Næsti kaffifundur haldinn á Kirkjusandi
Skrifað af: Ritari
miðvikudagur, 10. febrúar 2010 07:39
|
|
|
|
Kaffifundur félagsmanna laugardaginn 13. febrúar næstkomandi kl. 10:00 verður haldinn í aðstöðu Ökukennarafélagsins á Kirkjusandi. Sýndir verða skrikvagnar og færanlegt forvarnarhús ásamt aðstöðu félagsins. Félagsmenn hvattir til að mæta.
Síðast uppfært ( fimmtudagur, 11. febrúar 2010 20:06 )
|
|
Tilkynning til ökukennara varðandi nýtt kerfi ökunáms sem nú hefur tekið gildi.
Skrifað af: Ritari
sunnudagur, 17. janúar 2010 20:22
|
|
|
|
Málin standa þannig að Samgönguráðuneytið hefur ekki ennþá samþykkt námsskrá fyrir Ö3. Þess vegna er ekki hægt að kynna verðlagningu námskeiðanna strax.Þeir nemendur sem hefja ökunám 01.01.2010 eða síðar sem eru skyldugir til að sækja nám í ökugerði (Ö3). Ökukennarafélagið hefur ákveðið að strax og námskrá hefur verið samþykkt af ráðuneytinu verði þeim ökunemum sem hafa byrjað ökunám eftir 01.01.2010 og ætla að ljúka því í janúar eða febrúar boðið upp á nám í Ö3. Félagið óskar eftir því að félagsmenn sem eru með slíka nemendur að hafa samband við skrifstofuna og skrá viðkomandi einstaklinga á lista. Unnið verður að lausn þeirra mála.Verðlagningu fyrir námskeiðið verður stillt í hóf þannig að þeir bíði ekki fjárhagslegt tjón af. Ljóst er að nokkuð vantar upp á kynningu á þessu málefni félagsmönnum hefur verið boðið upp á sérstakar kynningar á Kirkjusandi. Eins og fram hefur komið eru það einungis nemendur sem eru fæddir 1994, eða þeir sem hefja ökunám eftir 01.01.2010 sem eru skyldugir til að koma í Ö3 (Ökugerði) og því er ekki gert ráð fyrir neinni sprengju í aðsókn svona fyrst um sinn. Nokkrir þættir varðandi þetta mál eru enn ófrágengnir en strax og námsskráin verður staðfest verður sett af stað kynningarherferð. Ökuskóli Ö1 verður 12 tímar, Ö2 verður 10 tímar og Ö3 verður 5 tímar sem skiptast í 2 verklega tíma og 2 tímar sem verða blanda af sýni- og fræðilegri kennslu og svo einn tími í fræðilegu námi. Félagsmenn eru beðnir að vera vakandi og fylgjast vel með þegar þessi starfsemi verður auglýst.
Bestu kveðjur, Guðbrandur Bogason, framkvæmdastjóri
|
|
|
Ársþing 2010
Skrifað af: Ritari
föstudagur, 15. janúar 2010 21:47
|
|
|
|
Ársþing Ökukennarafélags Íslands verður haldið 28. apríl 2010. Nánar auglýst síðar.
Síðast uppfært ( fimmtudagur, 21. janúar 2010 11:11 )
|
|
Ökukennarar útskrifast frá Háskóla Íslands
Skrifað af: Ritari
fimmtudagur, 10. desember 2009 21:27
|
|
|
|
Þann 5. desember s.l. útskrifuðust 24 ökukennarar frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Verkefnastjóri var Knútur Hafsteinsson. Ökukennarafélag Íslands óskar hinum nýju ökukennurum velfarnaðar við ný og krefjandi viðfangsefni.
Síðast uppfært ( föstudagur, 11. desember 2009 12:11 )
|
|
Ökukennara vantar í Noregi
Skrifað af: Ritari
miðvikudagur, 18. nóvember 2009 19:56
|
|
|
|
|
Síðast uppfært ( miðvikudagur, 18. nóvember 2009 20:00 )
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 Næsta > Síðasta >>
|
|
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL |