|
Dagar ökukennara í Osló 16.-17. okt. 2009
Skrifað af: Ritari
miðvikudagur, 06. maí 2009 22:20
|
|
|
|
Trafikk Lærer Dagen verður á Radisson SAS hótelinu í Osló dagana 16. og 17. október 2009. Það er norska ökukennarasambandið ATL sem skipuleggur þessa daga. Nokkrir íslenskir ökukennarar tóku þátt fyrir tveimur árum og voru mjög ánægðir með stemminguna og það sem fram fór. Allir norrænir ökukennarar eru velkomnir. Áhugi er á hópferð félagsmanna Ökukennarafélagsins og verður athugað með áhuga á heimsókn til ökuskóla eða á aksturskennslusvæði fimmtudaginn á undan. Áhugasamir hafi samband við skrifstofu félagsins.Sjá PowerPoint kynningu
Síðast uppfært ( miðvikudagur, 15. júlí 2009 23:06 )
|
|
Ráðinn framkvæmdastjóri
Skrifað af: Ritari
mánudagur, 04. maí 2009 22:25
|
|
|
|
Stjórn Ökukennarafélagsins hefur ráðið framkvæmdastjóra frá 1. maí 2009. Ráðningin er í samræmi við starfsramma stjórnar sem samþykktur var á ársþingi 2008.
Guðbrandur Bogason fyrrverandi formaður hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri í hlutastarf til fimm ára.Á meðfylgjandi mynd er hinn nýi framkvæmdastjóri að undirrita ráðningarsamninginn.
Síðast uppfært ( mánudagur, 04. maí 2009 22:37 )
|
|
Formannaskipti
Skrifað af: Ritari
þriðjudagur, 28. apríl 2009 22:43
|
|
|
|
Á ársþingi sem haldið var 28. apríl gaf Guðbrandur Bogason ekki kost á sér til endurkjörs. Jón Haukur Edwald var kjörinn nýr formaður.
Síðast uppfært ( miðvikudagur, 29. apríl 2009 22:47 )
|
|
Bráðabirgðaakstursheimildir afhentar hjá Frumherja
Skrifað af: Ritari
þriðjudagur, 31. mars 2009 20:57
|
|
|
|
Ökukennarafélagið hefur lengi unnið að því að fá stjórnvöld til að heimila afhendingu bráðabirgðaakstursheimilda til B-réttinda hjá Frumherja strax eftir að próftaki hefur staðist próf. Augljóslega er hér um að ræða mikinn þjóðhagslegan sparnað. Þetta er nú orðið að veruleika fyrir þá próftaka sem sækja um próftökuheimild í fyrsta sinn frá og með 1. apríl 2009.Sjá frétt á heimasíðu Frumherja
Síðast uppfært ( fimmtudagur, 30. apríl 2009 07:57 )
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 Næsta > Síðasta >>
|
|
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL |